Ég er byrjuð að vinna í skaffó.. það er geggjað gaman, mjög fjölbreytt starf maður er aldrei að gera það sama, og konurnar sem vinna þarna eru yndislegar haha Dílla Halla og Silló frænka fúsa... altaf að fíflast e-ð geggjað gaman að vinna með þeim. En allavega þá var ég bara að vinna í skaffó um helgina fór snemma í háttinn á föskvöldið og var svo mætt í vinnu kl 10 á lau morgni og var að vinna til 4. eftir vinnu fór ég heim og var lína ný skriðin frammúr rúmminu og það kl hálf 5!! =O... um kvöldið var ég svo bara að rúnta með fúsa og línu, fór svo að keyra palla, finn, janton og bigga hall seinna um kvöldið, það er vægara sagt hægt að segja að finnur hafi verið á eyrunum.. hann var alveg mökkölfaður haha en það var bara gaman að þeim.
En eitt sem mig langar að ræða hérna... Vinir!! hvað eru vinir, traustir vinir??=/:O allavega finnst mér ekki að traustir vinir eða vinkonur séu fólk sem sleikir mann upp á fullu og drullar svo yfir mann við annað fólk =S Ég veit um manneskju sem á ekki alveg 7 dagana sæla útaf svona veseni... fólk sem lætur svona á bara e-ð bágt og þarf virkilega að fara að gera e-ð í sínum málum... ég skil ekki alveg tilganginn í að láta svona.. ég held að þetta sé bara minnimáttarkennd og öfundsýki.. eða hvað? hvað meinar fólk með sovna kjaftæði??=O... Hvernig getur fólk ætlast til þess að allt sé bara í himnalagi eftir að hafa verið að láta sovna útúr sér!!!
maður pælir svo mikið í svona dæmi:/
endilega kommentið :)
En Sigfús Arnar er 18 ára í dag og ég óska honum að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju með daginn ;** =)
18. nóvember 2007 klukkan 18:25
Þórey - Helga 11 athugasemdir
-ég ætla núna að blogga... -ég veit ekkert um hvað ég á að blogga þannig að ég bulla bara... -það er gott að bulla -líka svo gaman=) -við fúsi fórum og fengum okkur shake áðan og hann helltist allur yfir mig... ekki sniðugt!! =/
hefur e-ð skeð hjá mer undanfarið?? veeeit ekki sko...
ég var að keyra damma í gær... var með urði með mér á rúntinum í egilega alla nótt=) JEEII:D... Guðrún var bliiiindfull hahaha... fór heim um hálf 2 og drapst í nokkra tíma og vaknaði svoaftur og fór til sigga bigga haha... Gudda skohh :D
Það er krumpaður 500 kall fyrir framan mig, Jón sigurðsson er framan á honum... afhverju er það aftur?? :O ég lærði það í 10 bekk en ég hreynlega man ekki afhverju.. =/.....
ÉG ÞOLI EKKI FÚSA HANN ER ALTAF AÐ REKA VIÐ Í LÓFANN Á SÉR!!! =/=/.....
fúsa finnst hann vera bestur... hann bað mig um að skila því.. þannig að ég geri það svona..
Nenni ekki að blogga meira er farin að kítla fúsa það er svo gaman
bæææææ =) lov jú all:D
03. nóvember 2007 klukkan 17:49
Þórey - Helga 9 athugasemdir
Feitir bandaríkjamenn!! Sykursýki er megin dánarorsök bandaríkjamanna. Ómeðhöndlöð sykursýkir gerir að verkum að maður verður að skera útlimi af fólki. OJ! Hættið að borða óhollt feita bandaríkjafífl! Ég myndi gera eitthvað í þessu ef ég væri George Bush. Árið 2016 verður BNA ekki með neinn her vegna þess að BNA menn verða orðnir allt of feitir til þess að geta reimað skóna sína. Þetta lærir maður í heilsusálfræði: Eftir því sem að púlsinn er hærri þá nær lærri talan ekki að vera eins lág (??!?!?!). Skilgreining blóðþrystings: Já við erum á hundavaði hér! þetta er bara svona need-to-know. Okay. Blóðþrystingurinn er þrystingur sem blóðið leggur á æðarveggina. Þegar að fólk fær hjartaáfall fær hjatavöðvinn ekki lengur nægilega mikið blóð. Fita safnast saman í æðunum... Ég get svo svarið það! Núna verðið þið að hætta að borða óhollann mat!!! Annars hef ég ekkert að segja.
Jú Emilie, ég gleymdi alltaf að svara þér með hestinn - ég var líka alveg búin að gleyma að tala við Pétur Vopna og spurja hann út í pláss ;) þannig gott mál og ég heyri í þér yndið mitt ;* hafðu það gott og við sjáumst fljótlega! LOVE
Helga
26. september 2007 klukkan 17:16
Þórey - Helga 4 athugasemdir
hvernig á maður að byrja blogg eiginlega? Það tekur alltaf svo langan tíma að hugsa hvað maður á að byrja að segja,svo ég byrja bara á því að segja - EIN BESTA HELGI SEM ÉG HEF UPPLIFAÐ! Fórum suður á föstudag, ég og hjalli. Og Hjalli bauð mér með sér á NORDICA hótel, sem var bara geggjað! Þegar við komum suður fórum við í Kringluna að versla afmælisgjöf handa Tryggva og fengum okkur að borða. Ég og Guðrún fórum svo upp á Hótel og ég fór í sturtu en gleymdi að kaupa sjampó þannig ég hringi í Hjalla og bið hann um að kaupa þegar hann myndi koma upp á hótel. Þegar ég var búin að vera í sturtunni í rétt rúmlega einaoghálda klst þá kom Hjalli með sjampóið og ég var komin með alvöru RÚSÍNUPUTTA!! :D Fórum að djamma á föstudagskvöld með Guðrúnu og Óla og SiggiEy var að keyra, strákarnir byrjuðu reyndar að fara á vélasýningu en ég og Guðrún vorum á sprelli og spjalli upp á hóteli. Hjalli kom og náði í mig upp a hótel og þá fórum við öll niðrí bæ ásamt stórum hóp vöruflutningarbílstjóra og djammara :) Elli átti gullmola kvöldsins, Hann var að dansa við FLOTTA (að sögn Krissa) stelpu, Þegar Elli litli var búin að eyða kvöldinu í að halda utan um hana og vera góður við hana tekur hann eftir því að það er alltaf einn maður að fylgjast með þeim og Elli spyr; hvað er þessi maður alltaf að horfa á þig? og stelpan svarar; hann er vinnuveitandi minn. Þá segir Elli; HVA ERTU HÓRA!?? HAHAHA!! En svo fórum við Hjalli heim bara um 3leiitið og fórum að sofa. Á laugardaginn fórum við í LASERTAG og svo upp á hótel og Hjalli fór með einhverjum strákum í heitapottin og fékk nudd og flottheit. Svo var bara Árshátið Landvara, skemmtiatriðin voru geðveik, maturinn frábær og allt æðislegt. Þegar ballið var að byrja þá langaði Hjalla svo að við myndum fara upp á herbergi og leggja okkur aðeins og koma svo aftur bara um 1leitið. Við fórum upp og stilltum alltaf vekjaraklukkur en við sváfum þær af okkur og vöknuðum bara eldhress í morgun ;) Misstum því að fara á Ísafjörð og smala kindum hjá ömmu og afa Hjalla, en þau voru að því þessa helgi.
ætli það sé ekki komið nóg af fréttum af mér, hvað er að fétta af þér?? :)
Þórey, ertu á jörðinni? Ég er með fréttir af stúlkunni, mér skilst að hún sé komin á pikkfast! stelpanstelpan :) enn hef ég ekki komist að því hvað nafnið er á stráknum.
- Helga sem bloggaði tvisvar í röð!!
23. september 2007 klukkan 16:16
Þórey - Helga 3 athugasemdir
Eridda málið? Ég las það á Signýjar bloggi að maður á ekki að hafa svona "fyrsta" blogg langt svo ég tek að sjálfsögðu mark á því og skrifa bara nokkrar línur :)
Af mér er líka svona ágætlega gott að frétta, er föst á blöbbanum sem er æðislegt! :) Bý hjá Hjalla og mun líkegast búa hér eitthvað áfram.
Sumarið er búið að vera dásamlegt og alveg ógeðslega fljótt að líða! Ég var að vinna í Bæjarvinnunni í allt sumar en er komin aftur til "pabba gamla" (tryggva).
seinustu dagar - þessa Helgina kom Signý heim og við tókum föstudagskvöldið, alveg um leið og hun keyrði inn á pleysið, tókum við í rúnt og chill - alltaf gaman :) Laugardagurinn fór ég á Krókinn og hitti alla þar og við fórum í Staðarrétt, það var dásamlegt að hitta ykkur öll!! Og þegar ég kom heim þá hringdi Signý í mig og sagði; HAHAHA Helga, það er bíll búin að keyra ofan í skurð fyrir neðan kirkjuna!! og við fórum á fulluspani og skoðuðum þessi ósköp, Ósi greyjið hafði eitthvað verið að sýna sig og misst stjórn á bílnum og þrusað ofan í skurð! Svo ma segja að helgin hafi bara verið búin. Bara vinna framundan, Litli “nafni” okkar Hjalla, Helgi Hjálmar er í aðgerð á AK svo að Tryggvi kom ekkert í vinnuna í dag.
Hef þetta ekki lengra, hrósið mér nú þó að þetta hafi verið lélegt blogg! ég bloggaði þó :)
Elskykkur ;*
- Helga sem kann ekki að blogga :/
17. september 2007 klukkan 16:21
Þórey - Helga 13 athugasemdir
jæja maður er farinn að telja niður, Verslunarmannahelgin eftir 22 daga:D:D sjiit ég er að deyja hlakkar svo til :D.. en ég hef nú svosem ekki mikið að segja langaði bara svo að deyla tilhlökkun minni með ykkur =)..
Hvað á að gera um versló endilega kommenta með svör:D
i'm out =) blee:D
10. júlí 2007 klukkan 20:43
Þórey - Helga 7 athugasemdir
Núna er maður kominn aftur í sveitina, það þarf að fara að halda áfram að vinna. En það afi kemur heim á föstudaginn, kistulagning á þriðjudaginn og jarðaförin á miðvikudaginn eftir viku og jarðaförin verður í Goðdalakirkju. En yfir í allt aðra sálma... Ég fékk víst bílprófið í dag og það var heldurbetur rúntað félagi!! Fór og hitti Hjalla og Helgu á Blönduós og var svo bara á rúntinum...
en þetta er nú það eina sem ég hef að segja í bili.... ekki mikið en smá fréttahorn svona..
sæl að sinni =)
27. júní 2007 klukkan 22:07
Þórey - Helga 2 athugasemdir
Punktar um helgina;) Föstudagur: -Var bara slök á föstudeginum, fór á rúntinn og heim um 2. -Helga var á blöö hjá hjalla=)=)=) -Vaknaði einhverntímann um nóttina við að það kom e-r inní herbergið mitt -Það var Dabbi Víking haha, fullur, viltur, ætlaði að fara til óskars og vissi ekkert hvar hann var. -Bauð honum að sofa í herberginu línu -Þar svaf hann þangað til að ég vakti hann morguninn eftir og hann vissi fyrst ekkert hvar hann var. -Það kom í ljós að hann var ekki í skónum sínum þannig að það var bara rúntað um bæinn og farið í skaffó á sokkaleistunum.
Laugardagur: -Helga kom á Krókinn og ég fór með henni á gollanum og Hjalli, Gummi rauði og Elli á raminum góða á Hofsós ;). -Vörumiðlunarliðið meikaði það í boltanum=). -Mikið stuð á liðinu. -Reyndi að dröska saman tjaldinu en það gekk ekki fyrr en Elfar kom og veitti mér aðstoð sína =) -Við Helga fórum með Hjalla Ármann og Gumma rauða í sund á Hólum. -En restin af hópnum böðuðu sig í fiskikörum sem voru á Vörubíl sem drengur frá Grundarfirði kom með norður. -Grillað var eftir "sundið". -Mikil fjöldasöngur inní stóra tjaldinu. -Flestallir orðnir vel í því fyrir 10 og sumir lifðu ekki af allt ballið. -Ballið var fínt, mikið fólk. -Svaf í tjaldi með Hjalla og Helgu.
Sunnudagur: -við fórum á fætur um 11. -Morgunmatur úr KS Hofsósi ;) -Tekið saman dótið og tjaldinu pakkað niður. -Farið heim hálf eitt
-Stefnt á Húnavöku í júlí;)
-Fleyra var það ekki í bili=) -Bleeee Þórey
24. júní 2007 klukkan 18:05
Þórey - Helga 2 athugasemdir
Ég áhvað að blogga smá þótt að ég hafi nú ekki beint mikið að segja, allavega ekki mikið gott.
En fyrir þá sem ekki vita þá dó afi í fyrradag eða þann 20. júní.
Þannig var að amma og afi voru að fara í bændaferð til Skotlands og Líney keyrði þau í Varmahlíð þar sem þau voru samferða Ragnheiði og Árna á Marbæli, þau fóru með þeim út. Þegar við hérna heima vorum búin að borða fórum við inní stofu og Addi í Litlu Hlíð hringir og segjist vera í vandræðum með graðhestinn sem afi lánaði honum í merarnar sínar, þannig að Líney hringir í ömmu og finnur strax á henni að það er ekki allt í lagi og spyr hvað sé að, þá segjir amma: ég hef ekki góðar fréttir að færa þér Líney mín, ég ætlaði að vera búin að hringja í ykkur en gat það ekki, en pabbi þinn fékk hjartaáfall og er dáinn. Svo talaði hún bara við Sæma sagði honum allt sem skeði.Þau koma þau út um hádegisbilið og fara í skoðunarferð og borða.Fara svo uppá hótelherbergi, afi fer á klósettið, þaðan heyrir amma allt í einu mikil óp og og rétt í því hneig afi niður, Árni reyndi hjartahnoð en ekkert gekk, það kom sjúkrabíll um leið og færustu læknar á svæðinu voru fengnir og allt var reynt en allt kom fyrir ekki.
Eins mikill nagli og hún amma er þá klárar hún ferðina með fólkinu og kemur heim á sunnidagskvöld, ekki er alveg vitað með afa en hann verður sennilega krufinn úti og kemur svo aðeins seinna til landsins.Mikil sorg ríkir hérna í sveitinni, síminn hefur ekki stoppað, fólk að hringja alls staðar að til að votta okkur öllum samúð,Að lokum vil ég þakka öllum sem hafa veitt okkur fjöskylduni stuðning og vona að þið gangið hægt um gleðinar dyrÉg ætla að tileinka af þessa bæn:Afabæn
21. júní 2007 klukkan 21:02
Þórey - Helga 5 athugasemdir
Hafiði velt því fyrir ykkur út á hvað lífið gengur? Þetta er eins og happadrætti stundum. Eins og margir segja þá lærir maður ekkert í lífinu nema að eyða fyrstu árunum í það að gera mistök. Ég hef perónulega gert mörg aulamistök sem ég þarf að gjalda fyrir en af þeim er ég búin að læra ekkert smá, maður fæðist víst ekki með allar gáfur. Ég vildi að sumt af þessu sem ég hef gert í gegnum tíðina gæti ég þurkað út. Ég held að persónur eins og ég er komist ekki mjög langt í lífinu sjálfstæðir, get aldrei tekið minar eigin ákvarðanir sjálf, kjarklaus - geta ekki komið neinu frá sér, hafa vilja en ekki þor, maður þarf víst að þora til að skora. Stundum gerir maður eitthvað sem maður getur ekki bakkað með, gleymir að hugsa um afleiðingarnar eða ekki einu sinni það, stundum verða einhver lítil kjánamistök orðið að verstu afleiðingum í heimi!!! Að missa einhvern frá sér sem manni þykur vænt um er sárt, svo sárt að maður getur eytt löngum tíma í að svekkja sig á öllu, maður gerir ekkert rétt, finnst allt ómögulegt – að velja og hafna er eitthvað sem maður þarf að gera í lífinu og þegar maður velur það vitlausa þá sárnar manni enn meira. Maður veit ekki hvað átt hefur fyrr en misst hefur, það er ekki alveg þannig, fólk veit hvað það á – allavega finn ég alltaf hvað vinir minir og fjölskylda eru mér mikils virði og ég gæti aldrei verið án þeirra en málið er að það er svo margt sem særir. Þegar maður segir eitthvað og gerir annað – jafnvel ósjálfviljugur þá er maður líka að skemma fyrir sér. Sumum er alveg sama þótt hann missi einn úr vinahópnum, maður tekur bara nýjan inn í næstu viku – það er alls ekki þannig, það er ákveðið traust sem maður hefur. Ég gæti aldrei sleppt neinum úr vinahópnum án þess að segja neitt. Ég hef líka lent í því að gleyma á hlusta á hvað hjartað segir, hlusta á það sem aðrir í kring um mann finnst, það er eitt af því versta – að hafa ekki trú á sjálfum sér. Ég myndi gera allt, leggja allt undir til að leiðrétta mistök sem ég hef gert. Að missa einhvern sem maður elskar er svo sárt. Njótið dagsins, njótið þess að vera ung, enda daginn sáttur, þakka fyrir hvern dag því þú veist aldrei hvað bíður þín, brostu framan í heimin og hann mun brosa til þín tilbaka.
En annars úr mínu daglega lífi þá er lítið að frétta. Bara vinna frá mánudegi til mánudags nánast. Er að eyða mínum seinustu dögum af dvöl minni á Blönduósi, 11júni kveð ég og flyt suður. Ég á samt eftir að sakna Blönduós, ótrúlegt en satt. Sérstaklega þeirra sem ég þekki orðið hérna. Þórey er farin að vinna einhversstaðar í rasshárunum á rassgati!! hennar er mikið saknað.. Ég skrapp svo í bæinn seinustu helgi og sannaði mina snilli í að rata í reykjavík, var með lykil sem ég átti að koma í árbæjarskóla en auðvitað endaði ég í seljaskóla?? hahaha
En jæja vinna á morgun, vakna snemma, ætla í beddann.
So, so you think you can tell Heaven from Hell,
blue skies from pain.
Can you tell a green field from a cold steel rail? A smile from a veil?
Do you think you can tell?
And did they get you trade your heroes for ghosts?
Hot ashes for trees? Hot air for a cool breeze?
Cold comfort for change? And did you exchange
a walk on part in the war for a lead role in a cage?
How I wish, how I wish you were here.
We're just two lost souls swimming in a fish bowl,
year after year,
running over the same old ground. What have we found?
The same old fears,
wish you were here.